26. apríl 2007
Hvenær ætli maður geti farið að kjósa utankjörstaða til að maður geti bara drifið það af að skila auðu til að geta slökkt á sjónvarpinu næstu vikurnar til að losna við röflið og bullið í misheimskum stjórnmálamönnum sem eiga hvernig sem kosningarnar fara og þrátt fyrir fögur fyrirheit og tímabundna ást á þjóðinni eins og hún leggur sig strax daginn eftir kosningar eftir að hrauna yfir landsmenn með því að hækka launin sín og maka sinn eigin krók af miklum móð sem fyrr í þessari fallegu sjálfhverfu sem þeir eru fastir í?
Er það furða að maður spyrji sig?
A. já ég er búin að drekka hálfa kaffikönnu sem skýrir óðmælgina og B. punkar og kommur eru ofmetið fyrirbæri.
Yfir og út.
25. apríl 2007
bajúmbadúmm

Óttalega þykir mér það leitt að höfundur Línunnar hafi látið það vera sitt síðasta verk áður en maðurinn með ljáinn kom og sótti hann, að búa til auglýsingar fyrir Kaupþingbúnaðarbankakbbankakaupþingkappaflingfling eins og raunin er. Æ ég veit ekki afhverju, af því bara sennilega. Línan á bara að vera Línan en ekki auglýsandi fyrir einhverjar stofnanir.
23. apríl 2007
18. apríl 2007
Eins og flestir lesendur síðunnar vita verður stórafmæli Píps haldið á laugardaginn og þar af leiðandi er útlit fyrir að undirrituð fari hugsanlega mögulega út að skemmta sér (edrú reyndar) í fyrsta skipti í 1 og hálft ár.
En hvað gerist: Miðbærinn brennur!
Mín heppni.
Agalegt annars að horfa upp á þetta, hefði verið nær ef hin ófríða strætóstoppistöðvarbygging beint á móti hefði frekar farið. Svona ef maður hefði mátt velja. Hún verður hvort sem er rifin á næstu árum skilst manni. En nú standa menn eins og þessi hér sveittir við að bjarga því sem ekki verður bjargað. Baráttukveðjur á ykkur!
---
Jiminn, fyrst kviknar í miðbænum og svo á að drekkja honum! Hvað næst?
13. apríl 2007
8. apríl 2007
Nú er sjálfur Páskadagur uppurinn nei ég meina upprunninn og hvað er þá meira við hæfi en að lúta höfði og minnast þrautargöngu krists fyrir okkur hin svona rétt á meðan maður treður súkkulaðinu í andlitið á sér.
Það er einmitt það sem ÓBG hefur verið að gera í skólanum og fyrir páskafrí kom hann heim með alveg hreint sérdeilis fínt páskakver þar sem hann hafði teiknað myndir við hvern og einn dag af því sem gerðist þann hinn sama dag og svo framvegis.
Hér gefur að líta þetta kver:
Gleðilega páska.
7. apríl 2007
Við Sölvi höfum greinilega mjög svipaða páskasiði.
---
Á heimilinu núna eru til páskaegg sem alls vega 2.375 grömm! Við erum bara 3 í heimili sem borðum páskaegg enn sem komið er. Mitt sem ég keypti af einskærri hógværð og auðmýkt er 475 grömm (nr. 5 frá Nóa).
Þá eru 1.900 grömm eftir!
Það gerir 950 grömm á hvorn feðganna! Þarna er einhver veruleg skekkja í gangi þykir mér. Hvað er í gangi?
Því ætti barn á sjöunda ári sem vegur kannski 25 kíló með bakpoka að borða heilt kíló af súkkulaði? Því ætti karlmaður á fertugsaldri sem hreyfir sig bara innan ákveðins tímaramma á laugardögum að gúffa í sig kílói af súkkulaði?
Það er því af eintómri ást sem ég ætla nú að setja hagsmuni þeirra í fyrsta sæti og gefa þeim páskaeggið mitt! Tæp 500 grömm af súkkulaði er meira en nóg handa þeim báðum og þeir eiga eftir að þakka mér fyrir á annan þegar þeir eru ennþá að brjóta sig í gegnum eggið sitt en samt að nálgast súkkulaðieitrun og blóðsykursofhitnun.
Og þá sit ég sæl í sófanum búin með ca. 400 grömm af mínum 1900 enda með pínu betra þol en þeir.
29. mars 2007
Í gær gerði ég afskaplega merkilega uppgötvun og einnig mjög mikilvæga fyrir íbúa þessarar jarðar trúi ég, sé tekið tillit til þróunar heimsins í alheimsfræðilegum skilningi. Sólin hefur stærra hlutverki að gegna en bara að vera sæt og geislandi. Hún bræðir snjó eins og sjá má á þessari mynd:
Haaaa?????
Auglýsing í Fréttablaðinu í dag (nánar tiltekið í aukablaðinu Allt, bls. 5, fyrir ofan miðju hægra megin):

Er verið að gera grín???
28. mars 2007
Jæja er lent og það fyrir viku síðan meira að segja en er búin að vera í afneitun síðan. Regla númer eitt: Aldrei fara úr landi fyrir skemmri tíma en þrjár vikur. Regla númer tvö: Ef fyrir furðulega tilhögun örlaganna þú ferð í skemmri tíma þá a) sofðu yfir þig þegar þú átt að fara í flug heim og/eða b) brenndu flugmiðana og talaðu svo við ferðaskrifstofuna eigi fyrr en tveim vikum síðar (þ.e.a.s. ef þig langar heim) og segðu að flugmiðunum hafi verið rænt. Þeir redda þér þá heim - ef ekki... ertu bara ágætlega settur í hlýju loftslagi og opnar bara bar eða finnur þér eitthvað að gera.
Annars er ég bara voða hress með að vera komin heim... Ræð mér vart fyrir kæti sko... Gott að hitta Óla sinn.
Var miður mín því ég hélt að ég hefði misst af eldhúsdagsumræðunum á Alþigi á meðan við vorum úti, sem ég reyndar gerði, en RÚV bjargaði því alveg í gærkvöldi með því að sýna stórkostlega þætti sem jöfnuðust alveg á við þingkalla.
Dagskráin var svohljóðandi:
20.55 Ómur af Ibsen - Heljarstökk
Norsk þáttaröð þar sem sagðar eru nútímasögur byggðar á verkum Henriks Ibsens.
21.25 Síðasta sígarettan
Finnskur þáttur þar sem fylgst er með hálffimmtugum manni fyrstu dagana eftir að hann hættir að reykja.
Takk RÚV fyrir að bjarga minni döpru sál.
Ein vísindaleg spurning í lokin: Hvernig fer nef út á kinn án þess að vera kýlt út á kinn?
Svarið má finna hér að neðan:
Shakeskin!
P.s. Svo er tónlistarlífið svo blómlegt á Íslandi! Í dag á einum og sama deginum hefði ég getað náð mér í miða á tónleika með Josh Groban (ógeðishorbjóður) og farið á tónleika með Cliff Richards (ógeðishorbjóður from the sixties). Afsakið rétt á meðan ég fæ malaríu af yndisleik þesssa alls saman.
Má ég frekar biðja um hann Jose Manuel, með skemmtarann einn að vopni, sem hélt uppi stuðinu svo mjög á Parque Del Sol á Tenerife að oftar en ekki lá við hjartaáfalli hjá heldri kynslóðinni. Að ég tali nú ekki um fantastíkófantastíkófantastíkó karókí-snillinginn sem hélt uppi fjörinu hin kvöldin. Þeir kunnu sko að skemmta fólki!
14. mars 2007
Ég var ekki búin að núa hótelinu sem við verðum á um nasirnar á ykkur, er það nokkuð? Þetta verður okkar huggulega heimili næstu vikuna og hér eru ítarlegri upplýsingar fyrir áhugasama. Lítur út fyrir að vera paradís og minnir mig satt að segja á Whitesands hótelið í Kenya sem við vorum á í denn, ekki leiðu að líkjast þar. Úff hvað þetta verður notalegt. Ef ég kem ekki heim eftir viku, óttist eigi heldur setjið frímerki á afturendann á ÓBG og sendið hann á þetta heimilisfang:
Parque Del Sol, c/o Perla Thrastar
Playa Fababe
38660 Costa Adeje
Tenerife
Islas Canarias
Við komum svo í heimsókn um jól og áramót... ef við nennum.
Já, það er ljóst að miðað við hvað ég er hátt uppi núna og ánægð með þetta allt saman, að einhver þarf að grípa mig í fallinu þegar ævintýrið verður afstaðið í næstu viku.
En þangað til ætla ég að vakna 7 sinnum og haga morgunmatnum mínum nokkurn veginn á þennan hátt:
8. mars 2007
Jæja nú er slétt vika í ég verði chillandi og svamlandi á eyju undan Afríkuströnd með óáfengan kokteil í annarri og barn í hinni. Þann 15. erum við semsagt að fara til þríhyrndu ævintýraeyjunnar Tenerife. Eyjan er í Kanaríeyjaklasanum og er að mér skilst áberandi skást af þeim eyjum. Meðalaldurinn á túristunum eitthvað lægri en á hinum eyjunum, enginn Íslendingabar og engin Framsókn með framboðsfundi; það ógeðispakk má halda sig á Gran Canaria ef þú spyrð mig. Vika skal það vera og mikið verður það nú ljúft.
Litli Píp fer í óvissu- og ævintýraferð í Norðlingaskóla á meðan þar sem börn sem nærast ekki á foreldrum sínum fara ekki með í þessa ferð. Vinnan hans Píps er nefnilega að bjóða og minnsti Píp er á undanþágu vegna mataræðis. Litli Píp er alveg að fara á límingunum af spenningi yfir að fara í skólann til ömmu sinnar og spyr á hverjum degi hvenær við förum eiginlega til útlanda þannig að hann geti farið til ömmu og afa. Og hann býst við að fá gúllas í kvöldmat öll kvöldin...: (tilvitnun hefst) "af því að ömmu þykir svo vænt um mig" sólskinsbroooos (tilvitnun lýkur).
Tenerife er hér:

Og svona lítur hún út þegar nánar er að gáð:
P.s. Bjartur fer til hinna ömmu og afa og fær þar vonandi eitthvað betra en nóakropp og lakkrís.
4. mars 2007
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands
Reykjavík, 4. mars 2007
Kæra ríkisstjórn.
Í kjölfarið af breytingum ríkisstjórnarinnar á virðisaukaskatti af matvælum um síðastliðin mánaðarmót, finn ég mig knúinn til að óska þess að áðurnefndar breytingar verði endurskoðaðar vegna hagsmuna minna og annarra gæludýra í þessu landi. Húsbændur mínir eru yfir sig hneyksluð vegna þess að fóður til handa mér er enn á sama verði og fyrir lækkun þar sem dýramatur fellur ekki í þá flokka sem lækkaðir voru.
Mikið er rætt um að tími sé kominn til að ég undirritaður fari einn míns liðs út í hinn stóra heim og veiði mér sjálfur til matar og verði með því "sjálfbær" köttur. Þetta huggnast mér eigi þar sem öndunarfæri mín eru veikburða og ég er mjög viðkvæmur fyrir svifryki, fyrir utan að feldurinn minn má síður blotna og ég er mjög kvefsækinn. Ég hef rætt þetta við húsmóður mína og hún hefur komið með þá hugmynd til þess að koma til móts við mig að ég fari á annað og ódýrara fæði og fái nóakropp á morgnana og lakkrís á kvöldin og kók þess á milli, af því að sætindi og gos lækkaði víst svo mikið.
Nú höfða ég til samvisku þinnar kæri fjármálaráðherra, verandi dýralæknirinn sem þú ert; geturðu hugsað þér að gæludýr þessa lands verði annað hvort send út á guð og gaddinn til þess að afla sér fæðis sjálf, eða verði látin borða hitaeiningaríkt sjoppufæði sem kæmi til með að orsaka ómælt hárlos og þónokkurn viðrekstur öllum til ama?
Ég bið þig og félaga þína í ríkisstjórn að hugsa málið betur.
Einnig vil ég koma því á framfæri að vesalings fóstbróðir minn, rétt 6 mánaða gamall, er byrjaður í þjálfun sem á að miða að því að hann verði farinn að nota kopp í lok vikunnar þar sem bleyjur lækkuðu heldur ekki um mánaðarmótin. Mér verður um og ó við tilhugsunina að þetta litla grey verði svift því öryggi sem bleyjan veitir og ábyrgðin á frárennsli hans verði lögð í hans eigin ungu hendur.
Gerið það fyrir mig á kosningaári að fara betur yfir málin svo við sem minnst megum okkar í þessu samfélagi, smábörn og gæludýr, verðum ekki látin líða fyrir ykkar yfirsjón.
Virðingarfyllst,
Bjartur Músarson
Kt. 020598-6669
1. mars 2007
Nú skulu hendur látnar standa fram úr ermum, spýtt í lófa og allur kraftur lagður í.... að ná sér í nokkrar millur! Er gjörsamlega gagntekin, altekin, heltekin af íbúð í næstu götu sem vill svo skemmtilega til að er hreinlega íbúðin mín! Að því leyti að hún er eins og hönnuð fyrir mig, í mínu fína hverfi og fullkomin að stærð, lögun og stíl. Og meira að segja með white picket fence - eitthvað sem maður sér hvergi núorðið nema í Herrabókunum. Eins og sjá má á myndunum hefur ekki sést svona hugguleg íbúð síðan ég veit ekki hvenær og ég get eiginlega ekki hugsað þá hugsun til enda að hún verði ekki mín. Hef engan veginn efni á henni, en nú skal þessi heppni sem er alltaf verið að tala um að elti mig, gjöra svo vel og ná mér, því nú munu mjólkurpeningar heimilisins fara í Lottómiða, Happaþrennur og einnxtvo. Ætti ekki að koma að sök því ég mjólka jú svo vel... hmmm
Af myndunum að dæma er ekkert í þessari íbúð sem ekki er frábært nema ef vera skyldi portrettið af hestinum á mynd nr. 2 en það er síður en svo óyfirstíganlegt að kippa því í liðinn þegar ég flyt inn. Með mína fjölskyldu að sjálfsögðu. Hvar er ríki frændinn í útlöndum þegar maður þarf á honum að halda? Getur maður ekki sótt um styrk einhversstaðar til að uppfylla drauma sína? Hvernig væri að senda Ópru mail og láta hana pakka húsinu inn í gjafapappír og slaufu og gefa mér í beinni útsendingu? Þá skal ég háskæla af hamingju í beinni af hamingju einni saman.
Nei svona án gríns er ég farinn að plotta vel og mikið og spá og spökulera fram og til baka til að við náum saman, ég og íbúðin mín.
Ef banki verður rændur á morgun, þá var það ekki ég...!
Ég skal allavega gefa þér 100 spírur fyrir að hylma yfir með mér.. blikk blikk.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
