Nú er sjálfur Páskadagur uppurinn nei ég meina upprunninn og hvað er þá meira við hæfi en að lúta höfði og minnast þrautargöngu krists fyrir okkur hin svona rétt á meðan maður treður súkkulaðinu í andlitið á sér.
Það er einmitt það sem ÓBG hefur verið að gera í skólanum og fyrir páskafrí kom hann heim með alveg hreint sérdeilis fínt páskakver þar sem hann hafði teiknað myndir við hvern og einn dag af því sem gerðist þann hinn sama dag og svo framvegis.
Hér gefur að líta þetta kver:

Bíðið nú við - við skulum aðeins staldra við föstudaginn langa. Þar dregur barnið síst úr þjáningu krists heldur undirstrikar ef eitthvað er hvað Jesú gekk í gegnum til að við hin fengjum fyrirframgreidda syndaaflausn (talandi um að taka one for the team). Þar má sjá blóðið renna líkt og stórfljót væri og innyflin úti; beinin falla til jarðar sem og hjartað úr honum. Þjáningin skín úr andliti hans og tungan lafir út. Hvað á barn svo sem að teikna þegar því er sagt að teikna mann negldan á staur annað en þetta?

Ég þykist sjá í syni mínum lítinn Hugleik Dagsson.
Gleðilega páska.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli