Jamm, svona lítur þá ástæðan fyrir súkkulaði-óþolinu, skapsveiflunum (ef sveiflur má kalla, aðallega bara vont skap), takmörkuðu matarplássi, þreytunni, þrengri fötum og öllu hinu út. Jú, þú lesandi sem ekki vissir, fjölgunar er að vænta í fjölskyldunni í lok ágúst!
Áætluð lending er 25. ágúst sem er reyndar ekki nógu góð dagsetning sé litið til þess að öll barnabörn EybÓla eru fædd 19. einhvers mánaðar. Miðað við það að síðast gekk ég 10 daga fram yfir þarf ég að grípa til róttækra aðgerða uppúr miðjum ágúst til að halda mig nú við þessa 19.-reglu. Ein hugmynd er komin upp nú þegar og hún er sú að taka þátt í Reykjavíkur-maraþoninu sem stefnir í að verði einmitt haldið 19. ágúst þetta árið. Hva skvera bara 20 kílómetrana af fyrir hádegi og vona að það ýti við kríli þannig að reglan haldist.
Fórum í sónar í gær og allt lítur ljómandi vel út og hann virðist bara nokkuð sprækur ;) Allt á sínum stað og vel starfhæft sem var afskaplega gott að vita, því einhvern veginn finnst manni sónarinn vera svona fyrsta almennilega sönnun þess að það er jú eitthvað að þróast þarna inni í manni.
Maginn á manni líka svo sem bara búinn að líta út eins og bjórvömb frekar en hýsi fyrir litla veru. Það er þó óðum að breytast núna og vel farið að sjást á ritstjóranum. Allt þetta sem ég taldi upp fremst virðist líka vera á réttri leið, allavega er súkkulaði-óþolið að láta sig hverfa enda ekki seinna vænna, þegar
súkkulaðihátíðin mikla er rétt handan við hornið... Fyrst að það er á réttri leið kvarta ég ekki yfir hinum kvillunum á meðan... oooneiii