18. apríl 2008


Vá hvað ég er að stríða píparanum núna! Búin að hakka mig inn á síðuna hans og það í tvígang og setja inn myndir af honum sjálfum án hans vitundar. Mohohohohohohohoho

Hinir fótboltadúddarnir halda bara að hann sé í góðum fíling að spá í nýju lúkki og allt að gerast.

Vona að þessi færsla sé ekki mitt síðasta blogg, því fótboltabullur eins og píp eru stoltar og geta látið hnefana tala þegar trampað er illilega á árunni þeirra.

Ef hann hefur ekki húmor fyrir þessu þá þakka ég bara fyrir mig í gegnum árin...

16. apríl 2008


Hvað gerir maður ef staða eigin fjár er ekki sem best. Nú, maður verður sér bara úti um meira eigið fé á einfaldan hátt hér!

12. apríl 2008


Það er mjög í tísku núna hjá fræga fólkinu að ættleiða börn frá framandi löndum. Eftir mikla umhugsun fannst okkur Píp við þurfa að leggja okkar af mörkum og gera slíkt hið sama. Við gerðum eins og Madonna og Angelina og fengum okkur fylgihlut sem er flottur á litinn og fær okkur til að líða vel með okkur sjálf og finnast eins og við höfum gert gagn svona í alheimslegu ljósi. Fyrir valinu varð einstaklingur frá þriðja heims ríkinu Bandaríkjunum (þið vitið rétt fyrir neðan Kanada) og kom hann til landsins nú fyrir páskana. Hann stenst allar vonir; er léttur, kátur og hláturmildur með eindæmum og vekur gleði hvar sem hann fer.

Hérna má sjá nýjasta fjölskyldumeðliminn:
(Hafðu hljóðið á til að þú getir heyrt hann tjá sig á frummálinu)


11. apríl 2008


Þetta er snilldarhús. Ef ég mundi kaupa það mundi ég umsvifalaust breyta nafni mínu í Línu af ætt langsokka, fá mér apa og eitt hross í garðinn. Svaka krúttaralegt hús og þar gera svo sem gólffjalirnar útslagið. Litavalið er rosa fjörugt en græni liturinn í forstofunni er geggjaðastur í jákvæðri merkingu þess orðs. Það sem mér finnst þó mesta snilldin eru "svalirnar" á bakhlið hússins.

Ef kallinn er leiðinlegur þá segir maður bara: “Æiji góði farðu bara út á svalir!”

10. apríl 2008


Þar kom að því að Píp færi að blogga!
Reyndar ekki einn og sér heldur í nafni bjórboltafélagsins Hómers.
Strákurinn búinn að setja inn 3 færslur og allt að gerast.

Fylgist spennt með hér!

4. apríl 2008


Vá hvað ég elska þennan mann! Hann er barngóður, duglegur, ljúfur og góður. Hann er umhyggjusamur og hugsar fyrst og síðast um nánustu fjölskyldu og langflestir sem þekkja hann kunna að meta hann. Hann vinnur rosalega mikið, en ég held að það sé til að hann geti dekrað fjölskylduna meira. Hann vinnur oftar en ekki lengi fram eftir á kvöldin og jafnvel fram á nótt ef svo ber undir.
Ég veit svo sem ekkert hvað hann er að vinna svona seint en það er lýsandi fyrir dugnaðinn í honum. Börnin dýrka hann og gleðjast heil ósköp þegar hann mætir á svæðið. Hann er fjallmyndarlegur og ber af sér góðan þokka. Hvað getur maður beðið um meira í einum og sama manninum?

Dexter, viltu giftast mér?

28. mars 2008


Þú bara verður að smella hér: Smelltu strax! Ef þú smellir ekki geturðu sleppt því að lesa áfram því þá veistu ekkert hvað ég er að tala um og missir af þessari dásemd í sögu fréttaflutnings í lýðveldinu Íslandi. Smelltu!
Fáheyrð snilld á ferð í kvöldfréttatíma Sjónvarps. Ef Bogi hefði ekki kynnt þetta inn hefði ég umsvifalaust ákveðið að þetta væri "skets" í fóstbræðrum eða eitthvað. Úff, beintengd Vúlkan sem er á bakvið sólina sko og allt að gerast. Svört listaverk en þeir sem eru "ættaðir" frá Vúlkan sjá liti. Og þetta sagði manneskjan bara sí svona við alþjóð og Boga eins og ekkert væri sjálfsagðara og án þess að blikna.

Vona hennar vegna að viðtalið hafi verið tekið í lok opnunarinnar og hún búin með aðeins of mikið af veitingum og ofhlaðin lofi. Spurning hvort hún sé með háloftaveiki verandi flugfreyjan sem hún er. Hún ætti nú að geta misnotað aðstöðu sína og beðið flugstjórann í næsta flugi, til dæmis á leið heim frá London, um að setja sig út á Vúlkan og halda sig svo bara heima hjá sér í litadýrðinni. Þið vitið, þarna á bak við sólina.

Og viti menn, frænka hennar er búin að gefa sig fram hér.

Ógeðslega get ég alltaf verið þröngsýn eitthvað... Ég er bara týnd í sortanum.

27. mars 2008


Þessi sjálfmjólkandi kýr minnir mig á eineygðu kýrnar sem við Píp rákumst einu sinni á, á leið okkar yfir Öxnadalsheiðina undir miðnætti ágústnótt eina í hitteðfyrra. Vorum að keyra í mesta sakleysi áleiðis til Dalvíkur þegar á heiðinni við sáum skilti sem á stóð "5 eineygðar kýr framundan".

Að sjálfsögðu hafði næturgalsinn tekið yfirhöndina því á skiltunum stóð "5 einbreiðar brýr framundan". En þetta varð til þess að við görguðum af hlátri yfir alla heiðina og minnstu munaði að Kári hefði komið í heiminn þá og þegar, allavega mæli ég ekki með að vera kasólétt upp á heiði, hossandi um í bílskrjóði, hlæjandi eins og grís að eigin vitleysu og ekki einu sinni í gsm-sambandi.

26. mars 2008


Kötturinn hans Símonar er kominn með nýtt myndband. Fyrir ykkur sem ekki munið þá setti ég síðast inn myndband með kettinum hans Símonar þann 18. jan. síðastliðinn.
Enn minnir hann mig að einhverju leyti á hann Kára minn. Ætli það sé ekki þessi ofbeldisfulla yfirvegun sem stafar af báðum...



Sölumanneskja hringdi og bauð mér áskrift að tímariti í gær. Meðal efnis í nýjasta tölublaðinu átti að vera ”heimilisofbeldi, krónan og svona umfjall sem er búið að vera í gangi.....” svo vitnað sé orðrétt í manneskjuna.

Skyldu vera framleidd stoðtæki fyrir málhalta?

17. mars 2008


Elsku afi Jens var borinn til grafar í dag. Hann dó fyrir 10 dögum síðan á alhvítum vetrardegi og við kvöddum hann í dag á fallegum vordegi. Alls ekki átti ég von á því að þurfa að kveðja afa svona snemma, kornungan manninn. Hann var 78 og hálfs eins og Óli mundi segja og manni fannst hann það hress og hraustur að hann ætti þó nokkuð eftir. En 9 dögum fyrir andlátið var hann lagður inn kominn með krabbamein í lungun. Aldrei hafði hann reykt þó hann hafi reyndar byrjað að bjóða mér í nefið um það leyti sem ég byrjaði að labba. Því miður, en um leið sem betur fer, var stríðið stutt enda ójafnt og ósanngjarnt í meira lagi. Nú hvílir hann við hlið ömmu minnar sem hann missti daginn sem þau eignuðust frumburð sinn, hann pabba minn. Þær verða meira að segja tvær sem taka á móti honum, amma Guðríður og amma Perla. Ekki amalegt það.

Hérna er lítil grein sem birtist fyrir u.þ.b. 2-3 árum í DV þar sem blaðamaðurinn rakst á hann afa á förnum vegi og akkúrat svona vil ég muna eftir honum, í bláu úlpunni sinni, með húfuna og á röltinu. Og það sem hann segir er líka lýsandi, "ussumfussumsvei" og svo prakkaralegt glott.

Hvíldu í friði elsku afi minn og takk fyrir allt.

14. mars 2008


Í dag, þann 14. mars er Pí-dagurinn! Mars er þriðji mánuður ársins og í dag er 14. dagur þess mánaðar (3.14 upp á engilsaxneskt tímatal) og eins og við vitum öll er byrjunin á Pí einmitt ca. svona: 3.141592653589793238462643383279502884197169399375105820974944. Að mig minnir.

Þess vegna þykir mér fullmikil einföldun að vísa bara í daginn og mánuðinn með Pí-deginum - auðvitað á Pí-stundin að vera í dag kl. 1.59 og tuttuguog sex sekúndum og 53 sekúndubrotum betur; samanber 3.14 1.59 26 53!

Hér er svo upphafsmaður þessa Pí-dags, að vonum kátur og hamingjusamur með að hafa komið í kring þessum degi sem við öll höldum uppá. Hann heitir Larry Shaw og átti einmitt óvenju góðan hárdag þegar þessi mynd var tekin á Pí-deginum í hitteðfyrra.


Skyrtuna fékk hann fyrir merkilega tilhögun örlaganna á akkúrat 3 dollara og 14 sent í Rauðakross-búðinni í San Francisco fyrr þann sama dag. Og talandi um úfið fólk í flottum fötum, 14. mars er líka fæðingardagur Alberts Einsteins.

Að vera með úfið hár er augljóslega ávísun á gáfur, næst þegar einhver ætlar að hlæja að mér fyrir að slétta hárið í gríð og erg og jafnvel af engu tilefni, þá er þetta bara mín afsökun: "get ekkert að þessu gert, er bara svo gáfuð að ég hef enga stjórn á hárinu á mér....!"

Það er gott að vera nörd!

4. mars 2008


Nú þarf ekkert að ræða það neitt frekar hver er líkur hverjum á þessu heimili! Tókum ægilega menntað upprunapróf á netinu og þetta er útkoman:


Við erum öll eins og spýtt út úr nefi hvors annars.

Hmmmm hugguleg samlíking.

Allavega við erum voða lík.

Sagði dauði maðurinn við dauðu konuna...

24. febrúar 2008


MIG LANGAR Í iPHONE MEST Í HEIMI!

Þvílík snilldar græja! Horfi girndaraugum á vinnufélaga mína sem eiga soleis, ekki þó á þá heldur símana þeirra. Ekki hægt að kaupa svona á Íslandi samt og það þarf víst sérstaklega að brjótast inn í þá til að nota hér. Kjánalegt dæmi og vona að það breytist fyrr en seinna. Þarna hefði maður músíkina sína, myndir ef maður vill og allskonar möguleika eins og til dæmis þennan:


Já það er gítar í símanum! Þyrfti þá ekki lengur að blístra gítarsólóin. Hentugt.

Jæja koma svo Apple fólk - selj'ann hér takk án vesenis og kvaða... plíííís.
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...
--> Free counter and web stats