Lóan er komin og það viku fyrr en í fyrra. Eitthvað tjáði ég mig nefnilega um það þann 29. mars 2004 að Lóan væri komin. Hef ekki séð hana ennþá samt en treysti fullkomlega nærsýnum úfnum
köllum með hýjung og í köflóttri skyrtu með kíki sem segja að Lóan sé komin. Þeir gera jú lítið annað en að litast um eftir Lóum, Fálkum og Geirfuglum. Þá hafa báðir vorboðarnir gert vart við sig: ég búin að lýsa á mér hárið og Lóan komin. Boðar gott sumar!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli