Árshátíðarferð pípfyrirtækisins sem pípið vinnur hjá verður vikuferð til Benidorm 23. - 30. september næstkomandi. Þeir höfðu talað um Kúbu og mín var sko heldur en ekki sátt og sæl með það en hvað svo... Benidorm!?!? Já já hvaða hvaða - pípin segja að þetta sé alveg sami hluturinn; sól, öl og sandur. Einu sinni áður höfum við farið til Benidorm (nánar um það
hér) og vorum í það skipti á Levante-ströndinni en í þetta skiptið verður það Costa Blanca-ströndin. Þær eru nú svo sem ekkert ósvipaðar held ég, 104 hæða hótel á hægri hönd og 128 hæða hótel á vinstri hönd og fullir bretar algengari en moskítóflugur! Bara alveg eins og á Kúbu!! Meðalhitastig í september mánuði ku vera rúm 25 stig og meðalaldur 74 ár. Í þessari Spánarför okkar árið 2000 vorum við nefnilega frædd um það að á vorin og haustin flykkist heldri borgarar í tonnatali á staðinn því þá er ekki jafn auknarlíkuráhjartaáfalli-heitt, semsagt maður verður ekki þarna eins og hundur með tunguna lafandi en fínt samt.
Hótelið sem við verðum á er merkilegt fyrir þær sakir að fararstjórarnir síðast kölluðu það alltaf Mafíu-hótelið! Það mun hafa verið af því að það hafði verið fleiri fleiri ár í byggingu og staðið autt í fjölda ára og stóð autt þegar við vorum þarna, þannig að kenningin var sú að rússneskir mafíósar hefðu verið með einhvernskonar peningaþvott í gangi...
Hér má sjá hvernig það lítur út: (er ekki frá því að það hafi farið með lítið hlutverk í Lord of the rings...)
Þeim sem sagt tókst að opna það fyrir tveim árum síðan og það ku vera svona ægilega fínt bara, eins og lesa má um
hér. Svo heitir það þar auki Bali þannig að ætli ég segi ekki bara að ég sé að fara til Bali... það hljómar miklu meira spennandi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli