
9. mars 2004
Vel byrjar það :/
Átakið mitt farið fyrir lítið þennan daginn!!! Einn í vinnunni á ammæli og kom með þessa svakalegu Hnallþóru og hún var svo girnileg að ég gat bara ekki hamið mig! Stenst allt nema freistingar! Ég bara má til með að deila þessari dásemd með þér og ætla að lýsa kökunni hér og nú, svona fyrst þú hefur ekkert þarfara að gera en að lesa þetta. Mæli samt með því að þú náir þér í tissjú svona ef munnvatnskirtlarnir verða pínu ofvirkir. Og hefst þá lesningin: Neðst var dúnamjúkur súkkulaðibotn, svo rjómi, dökkur marengsbotn, svo rjómi, dökkur marengsbotn, svo rjómi, mulinn marengsbotn, karmellusósa (eðal), súkkulaðisósa (eðal) og jarðarber! Svakaleg alveg... Ég nagaði hana og nú nagar samviskubitið mig.
En það góða er að ég fékk mér bara eina (stóra) sneið þannig að staðan gæti verið verri. Eftir stendur nú samt að sjálfstjórn mín er ekki uppá marga fiska.

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli