
9. mars 2004
Alrep í átaki...
Það er pínu gaman að vera í átaki og vera síétandi með góðri samvisku. Ég ætla nefnilega að taka þetta eins og maður á að taka þetta, þ.e.a.s. borða 6 sinnum á dag. Að vísu bara smotterí í einu en það er bara fínt, maður nær ekki að verða svangur á milli og svona. Mér skilst að það sé víst ekkert voðalega hollt að borða eina litla skyrdós yfir allan daginn og borða svo eins og togarasjómaður á kvöldin... aldeilis varð ég nú hlessa við að heyra það.
En ég verð að segja eins og er að núna verandi búin með 3 "máltíðir" er ég bara nokkuð södd og mett og er kannski ekki alveg klár í að borða meira eftir hálftíma... samt er ég bara að borða einn banana eða hálft rúnstykki eða ekkva álíka í hvert skipti. En þetta á eftir að komast upp í vana eins og allt annað. Já það er svona ægilega gaman að þessu!

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli