Skemmtilega staðreynd dagsins:
Perla - Overall 715th most popular girls name amongst BirthdayAlarm.
Þrátt fyrir veðurham dagsins þá var þetta bara nokkuð góður dagur, eða getur maður ekki annars sagt að dagurinn þegar maður fær, ja við skulum segja MJÖG ríflega, launahækkun sé góður dagur?!?!?!?!? Ég bara spyr! Var kölluð inn til bossins í dag og vissi satt að segja ekki hverju ég ætti von á en haldiði ekki bara að hann hafi sagt við mig að þeir væru mjög mjög mjög ánægðir með mig (bein tilvitnun)! Og voru barasta tilbúnir að hækka launin mín slatta mikið... Maður bara má til að monta sig aðeins

Til að halda upp á þetta ákvað ég að skrá mig í heilsuátak fyrir sumarið, það þýðir sko ekkert annað en að vera í toppformi í sumar... verandi ætlandi að labba eins og Reynir Pétur um allt land, Fimmvörðuháls og fleira. 8 vikna átak með hoppi og skoppi þrisvar í viku, ráðgjöf, fyrirlestur, þrekpróf og alls konar mælingar og pælingar. Og ekki má gleyma vatnsbrúsanum!!! Það er sko algjörlega kominn tími til að koma sér uppúr þessi vetrarsleni og hana nú! Skál!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli