Nýja símaskráin er komin út! Hingað til hafa mismunandi gamlir meistarar prýtt kápuna en nú ber svo við að maður getur valið um 4 kápur með myndum af
kúlutjöldum í hinum ýmsustu stellingum og að mér sýnist í hinu ýmsasta ástandi líka. Þetta er merki um það hvað síminn er orðið "hipp og kúl" fyrirtæki eftir ímyndarbreytinguna um daginn. Já, það gerist ekki mikið svalara en kúlutjald á hvolfi á snjóbreiðu...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli