Áðan hringdi kúnni, sem telst svosem ekki til tíðinda, nema hvað, hann átti ekki til orð yfir hvað þetta væri nú einstakur vinnustaður, einu kvenkynsverurnar á svæðinu heita Perla og Fríður! Svo ævintýraleg nöfn að það hálfa væri nóg fannst honum. Var ekki búin að gera mér grein fyrir þessu sjálf...
Bíó í kvöld í boði uppáhaldsins okkar allra, Bylgjunnar

, eða réttara sagt í boði Halla sem er jú starfsmaður á Bylgjunni og leigir skrifstofu hjá okkur. Nóg um það... myndin sem um ræðir heitir Runaway Jury og státar af leikurum á borð við John Cusack og Dustin Hoffman og fleira ágætisliði en um það bil fleira veit ég ekki, nema jú hún er gerð eftir sögu John Grisham sem reyndar boðar varla gott er það nokkuð... Jæja, kemur í ljós, frítt í bíó, maður mætir, gagnrýni á morgun!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli