Fór á skrall um helgina sem var takkfyrirkærlega fyrsta almennilega skrallið frá því í nóvember (fór í ammæli fyrir mánuði sem telst ekki með... var hálf edrú og fór ekki í bæinn!) Fór með Sigg-fólkinu og honum Inga Birni sem er jú þessi fyrirtaks djammari, ef ekki hefði verið fyrir hann hefði Sigg-fólkið eflaust dregið mig heim um 2-leytið...

Byrjuðum í partíi í gulu húsi í Þingholtunum, fórum svo á Vegamót en vorum því miður ekki nógu lengi þar til að geta stúderað kókaínneyslu bimbóanna nógu vel. AÐVÖRUN: ekki smakka Vatnsmelónu Breezer eða hvað þessi baneitraði eldrauði drykkur hét! Jæja fórum svo á Kaffibarinn og spókuðum okkur með elítunni, næst var það Grand rokk, Kaffi List og svo tókst okkur Inga Birni að draga eftirstöðvarnar á 22 (Sigga
dó á Grand rokk og var send heim

). Þar var gaman eins og alltaf, ekki einleikið hvað þessi staður er endalaust skemmtilegur og múzikin einfaldlega gerist ekki betri! Þannig að þetta djamm mundi flokkast undir það sem við köllum Uptown-djamm. Álpuðumst reyndar inn á einhvern nýjan sorastað í Hafnarstræti (staðsetningin segir allt) á leið okkar á Nonna-bita. Þar hafiði þetta djamm í smáatriðum! Veit svo sem ekki afhverju ég er að skrifa þetta svona ítarlega þar sem þið lesendur voruð jú með mér, reyndar að vísu ekki Togga.
Talandi um sukk, fórum í ammæli hjá Tómasi í gær (merkilegt hvað maður lendir oft í því að fara í barnaafmæli daginn eftir djamm) og eins og við var búist tapaði mágkonan sér í kökubaxtri (þrátt fyrir mígreniskast) og lagði átakið mitt þessa vikuna í rúst! Ekki lítið sem hún þarf að hafa á samviskunni. Jæja kannski meira sjálfri mér að kenna. Fyrirtaks helgi! Amen!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli