24. febrúar 2007


Af ýmsu hef ég verið stolt um ævina;

mínum framúrskarandi og endalaust frábæru sonum,
mínum sérstalega hjartgóða og indæla sambýlismanni,
mínum bráðefnilega bróður sem varð 17 í gær,
hinum ýmsu fjölskyldumeðlimum og vinum við hin ýmsu tilefni í gegnum tíðina,
að hafa komið kettlingnum mínum til kattar (með örfáum geðveilum þó),
aðventukransinum mínum sem ég gerði um daginn

en sjaldan hef ég verið eins stolt og núna á þriðjudaginn þegar ég bjó til þetta:


















Og já við erum ennþá södd! jú Píp fékk líka að smakka...

P.s. potturinn er 10 lítra hið minnsta!

15. febrúar 2007


Voru ekki örugglega allir búnir að sjá Kára í Kastljósinu??? Ef ekki þá er tengillinn hér. Hann/við birtumst alveg í lokin, eftir 3 mín og 17 sek og feidum út og alles.

11. febrúar 2007


Píp orðinn þrítugur og nokkuð samur við sig bara. Á afmælisdaginn var hann reyndar ekki alveg eins og hann á að sér að vera. Hann var þó ágætlega hress þegar hann vaknaði en svo þegar leið á daginn var eins og hann yrði smátt og smátt leiðari og leiðari. Heyrði í honum í hádeginu og þá var eins og eitthvað hvíldi á honum og hljóðið í honum var ekki eins og það ætti að vera þegar maður á ammæli og er að éta hamborgara með vinnufélögunum. Hélt að veikindin sem hann var nýstaðinn upp úr væru að plaga hann og ef til vill hefði hann farið full fljótt af stað. Svo upp úr hádegi kom hann aðeins við heima og enn voru menn ekkert syngjandi kátir. Hann kláraði svo að vinna seinnipartinn og þá var staðan þannig að hann fann sig hreinlega knúinn til að leggja sig.
Æji er tilhugsunin um fertugsaldurinn alveg að fara með hann hugsaði ég. Hann náði að halda andlitinu á meðan fjölskyldan kom í mat og lék á als oddi og var alveg frámunalega kátur en þegar allir voru farnir helltist depurðin yfir hann. Þá sá ég að þetta gengi ekki svona og hélt fyrir hann fyrirlestur um að það væri nú ekki svo afleitt að verða þrítugur og það væri enginn ástæða til að vera svona dapur. Hvort hann gerði sér ekki grein fyrir því að hann væri nú ekki nema þrítugur og ætti, ef heppinn fylgir honum, nokkuð marga áratugi ólifaða. Jafnvel ætti hann 2/3 ævinnar eftir ef hann ætlaði sér að verða jafn langlífur og hún amma hans. Eitthvað var hann fjarlægur og þessi ræða virtist ekkert kæta hann, ef eitthvað var varð ég vör við smá snökt. Þá varð mér allri lokið og spurði hann hvort hann væri ekki nákvæmlega sami maðurinn og í gær, fyrradag og fyrir ári síðan. Þetta væri ekki svona agalega breyting og aldur væri afstætt hugtak.
Hann hristi hausinn, axlirnar á honum byrjuðu að skjálfa og hann kjökraði:
"Anna Nicole er dáin....." og flóðgáttirnar opnuðust.

9. febrúar 2007


Í dag er hinn stóri ÞRÍRNÚLL dagur hjá Píp. Ritstjórn síðunnar vill nota tækifærið og óska honum til hamingju með daginn með þökk fyrir innblástur í gegnum árin. Án hans fjallaði síðan sennilega um hitakærar örverur eða ensím, jafnvel kúmbalahúð og frangúlabörk.
Boðað verður til mikils fagnaðar síðar og verður sá atburður nánar auglýstur þegar þar að kemur.
Hvernig væri nú að senda kallinum skeyti annars?

1. febrúar 2007


Hér getur að líta tröllvaxið barn sem fæddist í Mexíkó og komst í heimsfréttirnar.
En maður spyr sig; Baby muy grande hvað????
Kári Fannar var 55 sm þegar hann fæddist og þessi ágæti RisaMexíkói líka!
Sá Mexíkóski var reyndar hausnum þyngri en Kári en hver er að telja...
Suður-Ameríkanar eru bara vanir fjaðurvigtar börnum greinilega.

Ísland stærst í heimi!

31. janúar 2007


Múslimarnir höfðu rétt fyrir sér: hunsum allt sem danskt er!!!!!!
Djö%&$#inn danskur!

26. janúar 2007


HM í handbolta í algleymingi. Þjóðin við það að ganga af göflunum í ástar/haturs sambandi sínu við landsliðið. Taldi leikinn í dag gegn Pólverjum unninn og ákvað bara að nota tækifærið og fara í Bónus þar sem ég var búin að ákveða það að ég mundi hafa búðina útaf fyrir mig þar sem Íslendingarnir væru heima að horfa á leikinn og Pólverjarnir líka. Get svo svarið það búðin var bara full af Pakistönum í staðinn.
Það er greinilegt að það er algjörlega nauðsynlegt að ég horfi á leikina, horfi en ekki hlusti. Jú þegar við vorum á leið í bæinn af norðurlandinu hlustuðum við á leik sem tapaðist. Og þegar ég fór í búðina og hlustaði á eitthvað af leiknum töpuðum við, eða eins og maður segir þegar illa gengur; töpuðu þeir! Þegar ég skoða þessar staðreyndir þá er það auðséð mál að ég verð að reyna að sjá hvern einasta leik til þess að ekki fara nú að halla undan fæti hjá liðinu. Það er nokkuð ljóst samkvæmt þessu að ég er sjálfskipað lukkutröll liðsins og nú ættu einhverjir fjársterkir lesendur að styrkja mig ásamt aðstoðarmönnum (Frú Sigríði til dæmis) til frægðarfarar til Þýskalands þar sem ég mundi tryggja það að Bermúdaskálin endi á Íslandi. Gæti líka tekið að mér að aðstoða sjúkraþjálfara liðsins við hin og þessi viðvik svo sem nudda þreytt læri, syngja forsöng í þessari tímalausu snilld og fleira í þeim dúr þannig að það væri ekkert lítið gagn sem ég mundi gera.
Fjársterku aðilarnir mega gefa sig fram í commentunum takk fyrir í dag yfir og út.

17. janúar 2007


ÓBG hefur heldur betur aukið orðaforða sinn undanfarið. Það nýjasta var að hann var farinn að segja "sjitt" í tíma og ótíma, eitthvað sem við foreldrarnir bentum honum kurteislega á að væri ekki fallegt orð og bæri ekki að nota. Einn daginn koma hann svo heim og sagði stoltur að hann væri búinn að finna nýtt orð til að segja í staðinn fyrir sjitt. "Nú, hvaða orð er það?" sagði pabbi hans. "Fokk!" sagði kauði stoltur.

Haldinn var fjölskyldufundur í skyndi og farið yfir málið með honum.

16. janúar 2007


Trúi því ekki að ég sé að blogga um þau, en svona er fólk ánægt með að fá The Beckham's til Hollywood:

Þetta ágæta egósentrískasnobbaðaillatalanditilgerðarlegafrægtfyrirekkineitt merkis fólk ætti að kunna ágætlega við sig þarna meðal jafningja sinna og finna sína Beckingham Palace. Óttast hins vegar að (ekki)fréttum af þeim og þeirra upátækjum eigi ekki eftir að fækka í kjölfarið. Romeo flogaveikur og svona, það má sennilega gera sér mat úr því í nokkra mánuði og eins þegar eitthvað baðfatamódel kemur fram og lýsir ítarlega heitum stundum þeirra Davids saman. Þó hann leiti aðeins út fyrir garðinn sinn þegar hann er alltaf með einhvern ísklump mótaðan af manna höndum með fastan stút á munni upp í rúmi hjá sér... hva. Þori þó ekki að spá fyrir um hvort viðkomandi baðfatamódel verði karlkyns eða kvenkyns...

Er ég ennþá að tala um þau???
Ókei myndin er góð og hún réttlætir þessa færslu!

14. janúar 2007


Það er ekki tekið út með sældinni að vera hross greinilega. Hef aldrei þolað hvernig sumir hestamenn tala um og koma fram við bykkjurnar sínar eins og þær séu dauðir hlutir, '84 árgerð af Trabant eða eitthvað.
Svona hófst frétt af sviplegu andláti eins elsta hross landsins, Blakks frá Höfðabrekku (38) í Fréttablaðinu í gær:


Lélegur og lítið notaður! Mundi ekki tala svona um hjólið mitt! Hnussss!

Á föstudaginn fór ég með ÓBG á fótboltaæfingu í Höllinni, einu sinni sem oftar, og á sama tíma var karlalandsliðið í handbolta að skottast í salnum og hélt svo blaðamannafund. Ákvað að fórna mér og horfa nú á þessa æfingu með honum Óla mínum og vera honum til halds og trausts.
Sú staðreynd að þarna voru saman komnir tuttugu fílelfdir karlmenn í myndarlegri kantinum hafði engin áhrif á þessa ákvörðun mína. Ó nei af og frá! Óli á það alveg skilið að mútta horfi á hann endrum og eins. Það var samt óneitanlega hressandi þegar þeir sviptu sig úr landsliðstreyjunum allir sem einn að blaðamannafundinum loknum....

Úfff... verst þeir voru í einhverjum bolum og svoleiðs óþarfa innan undir. Landsliðið vantar klárlega stílista og ég skal bjóða mig fram!

P.s. ef einhver sá í blöðum helgarinnar mynd af landsliðsgaurunum og hóp af strákum í hvítum bolum fyrir framan þá, þá er ÓBG einn af þeim.

8. janúar 2007


Eftir erfiða vasaklútahelgi sit ég hér með grátbólgin augu og átta mig á að þetta er staðreynd! Þetta er ekkert grín! Þetta er ekki lélegur brandari sem ég las í Samúel.
Magni er ski.... *skælsnökt* skilinn! Ég sem hélt að hann og his ears (Eyrun) væru alveg yfirmáta frámunalega ástfangið fólk sem sæji meðal annars ekki sólina í LA fyrir hvoru öðru. En bara sisvona eins og hendi sé veifað er allt í upplausn, ástin gufuð upp og Marinó orðinn skilnaðarbarn! Nú held ég að Tommy Lee sé leiður. Fínu húsgögnin úr Egg verða söguð í sundur og veggfóðrið rifið í tvennt. Og hugtakið ást endurskilgreint í orðabókum.

Hvað gerir maður þegar svona voveifleg tíðindi berast??? Maður kannar hvað hinar rætnu tungur á heimasíðu miðstöðvar illa haldinna blaðurskjóðna sem eru alveg að ná tökum á fæðingarþunglyndinu en gengur verr með hinar skapsveiflurnar (barnaland.is) segja! Jú þær segja að Magni og vinkonan úr Rokkstar, hún Dilana, séu par! Herre gud. Þá fann ég mig knúna til að leggjast í smá heimildavinnu og kanna þetta aðeins betur og leit sem snöggvast inn í framtíðina og gúgglaði árinu 2032. Viti menn, fékk upp nokkrar myndir af áðurnefndum Magna (eftir hárlengingu og sjónpróf) og Dilönu (varð leið á dreddunum eftir að hún fann kettling í þeim sem hún nefndi svo Storm) að skemmta saman. Það fylgdi þó ekki sögunni hvort þau væru á þessum tímapunkti, eða hefðu einhverntíman verið par eða bara saman í bandi.
Myndirnar er óneitanlega skemmtilegar og sýna að þau munu engu hafa gleymt árið 2032:

M & D að tralla saman Radiohead slagarann "Creep".

D í miðju sólói.

Koma svo krakkar, rokkum aðeins.

"Let me stand next to your fire...". Áhorfendamergð á svæðinu.

"Only youuuuuu..." í pönkrokk útsetningu.

Allt að verða vitlaust í lokalaginu sem var "Smells like teen spirit".

Skjámynd á tölvuna.

7. janúar 2007


Gaaarg! Ég gleymdi að taka þátt í Lottóinu. Æji ég hefði hvort sem er aldrei valið þessar tölur.

30. desember 2006

Ritstjóra síðunnar hafa borist kvartanir vegna 111. meðferðar á þriðja afkvæmi okkar píps varðandi jólakortin í ár. Þykir einhverjum útí hött að einungis tveir yngri bræðurnir hafi verið myndaðir fyrir jólakortin og að í ofanálag sé ekki svo mikið sem minnst á þann elsta í kortinu. Þessi elsti sonur okkar, sem eins og kunnugt er, er af tegundinni halanegri (einnig þekkt sem hottintotti) og býr aðallega í kústaskáp heimilisins (þegar hann er ekki að þræla fyrir okkur hin á heimilinu) og hefur það meðal annars að markmiði að verða leðurblaka uppi á himnum þegar hann klárar lífin sín 9. Vegna þessara kvartana tók hann til sinna ráða og lét mynda sig í bak og fyrir og útbjó þetta fína kort sem hann ætlar bara að birta hérna á netinu þannig að hann er faktískt að óska ykkur öllum ánægjulegra stunda. Heppin þið. Því miður er ekkert til í okkar myndaforritum sem heitir Green Eye Removal þannig að við gátum lítið gert í þessum sjálflýsandi augum en þau virðast fylgja þessum kynþætti.

Gerðu svo vel herra Bjartur Sambó, þínar 15 mínútur af frægð: (það má smella á kortið til að skoða stærri útgáfu af því en það er þó alfarið á lesandans eigin ábyrgð.)


Til að fyrirbyggja allan miskilning viljum við benda á að Bjartur er síður en svo rasistískur að upplagi þó hann noti þessi orð um sjálfan sig og er orðavalið hans en ekki ritstjórnarinnar.
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...
--> Free counter and web stats